Eldra efni

Nafn:

Kvennakórinn Ymur

Staðsetning:

Akranes

Tenglar

22.10.2007 17:04

Kaffihúsakvöld 7. nóvember

Ymskonur ætla að standa fyrir kaffihúsakvöldi í Vinaminni þann 7. nóvember næstkomandi.

Kaffihúsakvöldin hafa verið árlegur viðburður í starfsemi kórsins og hafa mælst mjög svo vel fyrir.
Auk þess að hafa fagra söngrödd er hver ein og einasta okkar afar liðtæk þegar kemur að bakstri og kökuskreytingum og eru afurðirnar svo mikilfenglegar að unun er á að líta. Gegn hóflegu gjaldi fá gestir kaffihúsakvöldsins að hlýða á fagra tóna okkar um leið og þeir gæða sér á kaffi og veitingum af glæsilegu kökuhlaðborði kórkvenna í notalegu umhverfi.


Lagalisti kaffihúsakvöldsins er:

Pokarekare Ana

Swing Low
Deep River

Shenandoah
An Irish Blessing

The lark in The Clear Air
Flow Gently

Móðir mín í kví, kví
Vísur Vatnsenda-Rósu


Kæru kórkonur, smyrjið hrærivélina, brýnið tertuspaðana og hafið nóturnar tilbúnar, því þetta kvöld verður eitt það allra skemmtilegasta í haust!

24.09.2007 21:46

Vetrarstarfið er hafið :)

Loksins, loksins!

Vetrarstarfið hjá kvennakórnum Ymi er hafið.

Við höfum beðið í allt sumar eftir því að fá að hefja upp raust okkar á ný. Ekki skemmir fyrir hversu veturinn framundan verður gríðarlega spennandi og margt nýtt á döfinni:


  • Við ætlum að fara til Hollands í vor!
  • Æfingar hafa verið fluttar í nýja glæsilega tónlistarskólann við Dalbraut
  • Við ætlum að fara til Hollands í vor!
  • Framundan er skemmtileg vinna við ýmsar fjáraflanir tengdum ferðinni:
    • kaffihúsakvöld
    • spákonukvöld
    • tónleikahald
    • jólastemning í desember
  • og margt, margt fleira
  • ...var ekki örugglega búið að minnast á Holland??

Nokkrar nýjar söngkonur hafa bæst í hópinn síðan í vor en við getum ennþá bætt við okkur í allar raddir.
Ef þú hefur áhuga á að syngja með hressum konum og taka þátt í skemmtilegu kórstarfi, endilega hafðu þá samband við okkur... nú, eða láttu bara sjá þig á Dalbrautinni.

Æfingar eru eins og venjulega á þriðjudagskvöldum kl. 20:00

Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 34
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 100828
Samtals gestir: 18289
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 05:43:16
##sidebar_two##