Eldra efni
- 2026
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2025
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2024
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2023
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2022
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2021
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2020
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2019
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2018
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2017
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2016
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2015
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2014
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2013
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2012
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2011
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2010
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2009
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2008
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2007
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2006
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
Tenglar
12.06.2008 10:48
Við erum komnar heim!
Ferðasagan er væntanleg (svona þegar búið verður að tæma þvottakörfuna og koma garðinum í samt lag).
Þangað til: kærar þakkir elskurnar mínar fyrir þá skemmtilegustu hópferð sem ég hef farið í
, Holland mun seint jafna sig á brottför okkar 

25.05.2008 01:44
Deventer
Það er nú að styttast í ferðina okkar og því aldeilis að færast yfir mann tilhlökkun. Mig langaði svo að vita hvert við værum eiginlega að fara og því fékk ég Google til lags við mig og eftir víðfeðma leit hefur eftirfarandi komið í ljós:
Borgin Deventer virðist vera hin merkilegasta borg og falleg að auki af myndum að dæma. Hún er staðsett í héraðinu Overijssel við ána Ijssel. Íbúar eru 97.000. Frá Deventer er klukkutíma lestarferð til Amsterdam.
Deventer er ein elsta borg Hollands.
Borgin var víst rænd og brennd af VÍKINGUM árið 882. Hún var
strax endurbyggð og varnarveggur reistur um borgina. Á götunni Stenen Wal er búið að grafa upp og endurgera hluta
veggjarins.
Tveir þriðju
borgarinnar eyðilögðust í bruna árið 1334.
Deventer var
mikilvæg á miðöldum vegna legu borgarinnar. Stór skip gátu siglt upp ána Ijssel
og komist til hafnar. Borgin var í sambandi Hansakaupmanna. (og við könnumst nú
aðeins við þá er það ekki??)
Brink er Akratorg Deventerbúa....eða meira svona eins og Austurvöllur kannski? Byggingar þar eru frá 1550 til 1900. Þar er mikið mannlíf, næturlífið er líflegt, markaður á föstudögum og laugardögum. Þar er einnig að finna bakaríið Bussink "Koekhuisje", þar sem hægt er að kaupa hina frægu hunangsköku Deventer-búa sem enginn má víst missa af.
Við Brink torgið er The Waag (Weighing-house) byggt árið 1550, er í dag byggðasafn Deventer. Utan á húsinu hangir 500 ára gamall suðupottur sem notaður var til að taka af lífi peningafalsara á miðöldum... áhugavert? Ég held nú það!



Lebuïnuskerk (Kirkja heilags Lebuins), sérstaklega fallega málað loft, og hægt að fara upp í turninn
á sumrin þaðan sem er gott 360° útsýni yfir borgina.

Bergkerk er miðaldarkirkja staðsett uppi á lítilli hæð. Er nú nýlistasafn. Í kring eru fallegar gamlar götur í hverfi sem ber heitið Bergkwartier.
Mælt er með notalegum göngutúrum meðfram ánni Ijssel, eða siglingu á henni.Hægt er að fara á báti yfir ána, þar er að finna garð sem heitir Het Worpplantsoen og einnig gamla vindmyllu, De Bolwerksmolen.
"Deventer Summer Fun Fair" er árleg hátið, haldin fyrstu vikuna í júní. Þessi hátíð stendur yfir þegar við mætum á svæðið og lýkur henni á sunnudagskvöldið með flugeldasýningu og öðrum herlegheitum.
Fótboltalið Deventer heitir Go Ahead Eagles og nú verður gerð grein fyrir afrekum þeirra. Nei bara grín!
Hér er hægt að skoða vídeó af Deventer.
Hér eru nokkrar gagnlegar slóðir:
http://www.vvvdeventer.nl/engels/
http://www.reindervrielink.nl/English/Deventer.htm
http://en.wikipedia.org/wiki/Deventer
25.03.2008 16:48
Æfing fellur niður í kvöld
Æfum í staðinn annað kvöld (miðvikudag) kl. 20:00.
23.03.2008 01:32
Æfingadagur og flóamarkaður í apríl!
Óskaplega hefur verið dauft yfir þessari síðu undanfarið en það horfir nú allt til betri vegar.
Kökubasarinn sl. miðvikudag gekk vonum framar og við getum verið mjög sáttar við afrakstur þess dags (þótt við náum ekki endilega þangað sem krakkagrislingarnir hennar Nínu hafa hælana!). Þrátt fyrir smávegis páskaliljusamkeppni á svæðinu kláruðust allar tertur upp úr kl. 17:00 og þá var lítið annað að gera í stöðunni en að pakka saman og fara. Við hefðum eflaust getað verið með helmingi fleiri tertur

Framundan er æfingadagur laugardaginn 5. apríl. Búið er að bóka sal og við mætum þangað hýrar á brún og brá með nótur, kræsingar og hverjar þær guðaveigar sem hugur okkar girnist. Hver veit nema Pauline mæti með Karaoke-græjurnar frægu, þannig að þær sem gerðu garðinn frægan á kerlingakvöldinu í fyrra geti rifjað upp taktana sem seint munu líða okkur hinum úr minni. (Ertu ekki komin með neitt með Sálinni Pauline??)
Svo er best að geta þess tímanlega að í lok apríl verður kórinn með bás á Markaðsdeginum á Safnasvæðinu. Þar verður flóamarkaðsstemning til fjáröflunar. Heyrst hefur að sumar kórkonur séu þegar komnar hálfar inn í geymslu hjá sér og reyta þaðan út gamla kjóla, matarstell og skópör í gríð og erg. Við hinar ættum að taka þær okkur til fyrirmyndar
.Gleðilega páska allar saman og sjáumst heilar, súkkulaðiþrútnar og tímanlega á þriðjudaginn

19.02.2008 09:44
Aðalfundur
Æfing hefst eins og venjulega kl. 20:00 og verður fundurinn settur kl. 21:00.
Sjáumst hressar!
14.01.2008 08:14
Æfingar eftir jólin
Þá hefjast æfingar að nýju eftir langt og strangt jólafrí.
Við sjáumst annað kvöld, þriðjudaginn 15. janúar kl. 20 í Tónlistarskólanum við Dalbraut.
Nýjar söngkonur velkomnar

07.12.2007 19:14
Jólalögin
Til að taka af allan vafa kemur hér lagalistinn svo allar verði örugglega búnar að raða í möppur fyrir næstu æfingu:
| |
Að öllum líkindum verður næsta æfing sú síðasta fyrir jól.
Munið svo að við syngjum á dvalarheimilinu Höfða laugardaginn 15. desember. Mæting kl. 14:15
Á sunnudaginn syngjum við svo upp á Safnasvæði kl. 15:30 og vonandi í Skrúðgarðinum í beinu framhaldi af því.
07.11.2007 23:31
Frábært kvöld!

Í lok kvölds var það mál kvenna að þessir tónleikar hefðu verið meðal þeirra allra best heppnuðu í sögu kórsins. Sömu sögu höfðu tónleikagestir að segja, við hljómuðum afspyrnu vel (þótt ritari segi sjálf frá...)
Ekki sátum við Ymskonur þó einar að sviðinu í kvöld því auk okkar tóku lagið trúbadorarnir Héðinn R. Jónsson, Krissi og ísbjörninn og Geir Harðarson ásamt Magnúsi Magnússyni. Einnig tók hljómsveitin Ferlegheit nokkur lög. Stóðu þessir herramenn sig allir með stakri prýði og kunnum við þeim kærar þakkir fyrir!
Kæru söngsystur, bestu þakkir fyrir yndislegt kvöld.
04.11.2007 22:16
Æfing og tónleikar framundan
Munið að næsta þriðjudag hefst æfingin stundvíslega kl. 19:30.
Mæting í Vinaminni á miðvikudaginn kl. 18:00 vegna tónleikanna.
Sjáumst hressar!

22.10.2007 17:04
Kaffihúsakvöld 7. nóvember

Auk þess að hafa fagra söngrödd er hver ein og einasta okkar afar liðtæk þegar kemur að bakstri og kökuskreytingum og eru afurðirnar svo mikilfenglegar að unun er á að líta. Gegn hóflegu gjaldi fá gestir kaffihúsakvöldsins að hlýða á fagra tóna okkar um leið og þeir gæða sér á kaffi og veitingum af glæsilegu kökuhlaðborði kórkvenna í notalegu umhverfi.
Lagalisti kaffihúsakvöldsins er:
Pokarekare Ana
Swing Low
Deep River
Shenandoah
An Irish Blessing
The lark in The Clear Air
Flow Gently
Móðir mín í kví, kví
Vísur Vatnsenda-Rósu
Kæru kórkonur, smyrjið hrærivélina, brýnið tertuspaðana og hafið nóturnar tilbúnar, því þetta kvöld verður eitt það allra skemmtilegasta í haust!
24.09.2007 21:46
Vetrarstarfið er hafið :)
Loksins, loksins!
Vetrarstarfið hjá kvennakórnum Ymi er hafið.
Við höfum beðið í allt sumar eftir því að fá að hefja upp raust okkar á ný. Ekki skemmir fyrir hversu veturinn framundan verður gríðarlega spennandi og margt nýtt á döfinni:
- Við ætlum að fara til Hollands í vor!
- Æfingar hafa verið fluttar í nýja glæsilega tónlistarskólann við Dalbraut
- Við ætlum að fara til Hollands í vor!
- Framundan er skemmtileg vinna við ýmsar fjáraflanir tengdum ferðinni:
- kaffihúsakvöld
- spákonukvöld
- tónleikahald
- jólastemning í desember
- og margt, margt fleira
- ...var ekki örugglega búið að minnast á Holland??
Nokkrar nýjar söngkonur hafa bæst í hópinn síðan í vor en við getum ennþá bætt við okkur í allar raddir.
Ef þú hefur áhuga á að syngja með hressum konum og taka þátt í skemmtilegu kórstarfi, endilega hafðu þá samband við okkur... nú, eða láttu bara sjá þig á Dalbrautinni.
Æfingar eru eins og venjulega á þriðjudagskvöldum kl. 20:00
